Gluggasmiðjan og ÍAV hafa undirritað verksamning vegna Hjúkrunarheimilis í Reykjanesbæ. Gluggasmiðjan mun sjá um framleiðslu á öllum álklæddum timburgluggum sem og álgluggum verksins. Arkítektar byggingarinnar eru THG Arkítektar. Á myndinni, sem tekin var við undirskrift verksamnings handsala þeir Stefán Þór Steindórsson sölumaður hjá Gluggasmiðjunni og Tryggvi Jónsson, verkefnastjóri hjá ÍAV samninginn.