Á síðastliðnum misserum hefur Gluggasmiðjan lokið við verkþætti sína í ýmsum stórum verkum. Má þar nefna Stúdentagarðana við Sæmundargötu í Reykjavík, fjölbýlishús við Löngulínu 15-23 og Hjúkrunarheimilið í Reykjanesbæ. Óskum við viðskiptavinum okkar, Sveinbirni Sigurðssyni, Byggingafélagi Gylfa og Gunnars og Íslenskum Aðalverktökum, til hamingju með verklokin.
Framundan eru spennandi verkefni og má til dæmis nefna Mánatún fyrir Sveinbjörn Sigurðsson. Ráðgert er að byggðar verði allt að 175 íbúðir á reitnum en í fyrsta áfanga verkefnisins verða byggðar 89 íbúðir.